Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Maginn alveg að springa! ;)

CoolHehe já það má svo sannarlega segja að maður sé búin að borða aaaaðeins of mikið um jólin og ekki er allt búið enn! Cool Gaman að þessu samt.. Hamborgarhryggurinn hennar mömmu alltaf jafn góður á aðfangadaginn og pakkarnir alltaf jafn flottir og enn flottari með hverju árinu! Svo gaman að fá fullt af nýju dóti.. Ég gaf Ragga sjónvarpsflakkara og 500GB disk með og peysu og svo Hugo ilmatn/rakspíra í skóinn.. Svo gaf hann mér Nokia síma, Crash PS2 tölvuleikinn, bwaha bara góður leikur! Endalaust fyndin þessi Crash!! já.. og svo fékk ég bartskeravél sem á eftir að koma sér að góðum notum og ,,Heilsulausin" bókina sem mig langaði rosalega í! LoL Svo yndislegur hann Raggi minn InLove  Svo fengum við saman matvinnsluvél, einhverja svakalega græju frá foreldrum hans og sitthvora peysuna og OBH Nordica grill frá foreldrum mínum, svo fengum við rosalega sæta mynd af börnunum hans Grétars bróðurs og Helgu, straujárn, glerkertaskál rosa flott.. Svo var fullt en.. Skæri frá Þóru, geðveikt flott nærföt og Love Spell ilmvatnið frá Helgu, Bjarma og Ara og fullt fullt fullt... Grin Svo núna er maður bara að njóta þess hvað það er komið mikið af nýju dóti og liggja í leti.. Ég skellti mér nú samt á 2. í jólum ball með stelpunum! Aldrei þessu vant, hef ekki farið á ball síðan í júlí 2006.. Það var rosalega gaman, byrjaði á að fara heim til Elínborgar og Bjarnar Daða, þar vorum bara ég, Karen, Lovísa og auðvitað Elínborg, það var ekkert smá gaman heima hjá henni! Mikið grín og mikið gaman!! Þau búa í blokk og það voru soldil læti í okkur og viti menn! Er ekki kominn einhver kall að kvarta undan hávaða og sagði að það væru nú sumir að fara að mæta í vinnu um morguninn og blabla, hehe og Elínborg eins hreinskilin og hún er sagði bara: Já, ekki ég! LoL hehe og fékk svo leyfi til að hafa geðveikt hátt í 5 mín í viðbót og svo myndum við fara á ball, hehe og hann samþykkti það.. Svo fórum við á ball að verða 1, það var einhver svakaleg röð og þá fórum við bara á bakvið, Oj Ella með samböndinCool Það var gjörsamlega troooðið þarna inni og þegar klukkan var að verða 3 bað ég bara Ragga að sækja mig vegna þess að ég var ekkert að finna stelpurnar! Já svona er þetta en það var nú samt mjög gaman! Tounge 

.. Svo er bara árið 2008 að fara að bresta á, vonandi verður það jafn skemmtilegt ár og 2007.. Það kemur allavega eitt nýtt barn í vinahópinn og það er hjá Tinnu og Valla, hún er að reyna að bíða með að eiga þangað til yfir áramótin, barnið er aðeins að flýta sér í heiminn.. Ekkert smá spennandi! InLove gaman gaman! LoL Jæja, best að fara að gera eitthvað, held ég hafi bara aldrei bloggað svona langt! Gleðilegt nýtt ár allir! Halo


Jólajól!

Grin Jáá jólin eru sko að koma! Og ég er orðin veeeel spennt! Næstum búin að kaupa allar gjafirnar..  Svo er bara vinna á Stofunni og 7 dagar í aðfangadag.. Við Raggi verðum saman heima hjá foreldrum mínum og svo hjá hans á jóladag og á Stokkseyri á áramótunumJoyful gaman, gaman.. Verður fljótt að líða, svo mikið að gera.. Á eftir að skreyta fullt, baka, klára að kaupa gjafir og finna jólaföt, fjúffPinch Jæja ætla að fara að koma mér í háttinn svo ég sofi ekki til næstum 2 eins og í dag.. Ótrúlegt hvað maður er búinn á því eftir heilan dag í Reykjavík traffíkinni núorðið! Tounge Gúd næd pípol og eigið góð jól og verið góð við hvort annaðInLove 


Ótrúlegt hvernig þetta er orðið...

Já ég á svo sannarlega ekki orð yfir hvernig þetta er orðið í íslenskri skemmtana-menningu! Fyrst byrja einhverjir Keflvíkingar á að ráðast á allt og alla og leggja Kaffi Krús í rúst!! Voða töff eða hitt þá heldur.. Svo á laugardeginum er ball á Draugabarnum á Stokkseyri, þar eru 4 menn saman í hóp bara að leita eftir böggi! Við erum að tala um að þeir mæta í skóm með Stáltá!! og með kylfur! Svo hitti þannig á að Ari bróðir minn er þarna og þeir hafa greinilega ákveðið að taka hann bara fyrir og reyna eins og þeir geta að pirra hann, en Ari sagði þeim bara að hann væri bara ekkert á leiðinni í eitthvað bögg og bað þá að láta sig í friði.. En svona menn eins og þessir, útúr dópaðir og siðblindir skilja ekki svoleiðis.. Svo endar það þannig að þeir ráðst á hann einan 3 eða 4 saman, sem er nú kannski ekki beint sanngjarnt!! Frown  Svo er hann bara fluttur með sjúkrabíl á Selfoss, alblóðugur.. Núna er hann allur bólginn í framan, með sauma og glóðarauga.. Rosalega sorglegt og maður fær bara illt í hjartað!! Hann á þetta svo innilega ekki skilið, gerir engum neitt..Errm Bara á vitlausum stað á vitlausum tíma... Það var nú sem betur fer eru engin bein brotin! En mönnunum var náð og ég vona svo innilega að þeir fá FEITA kæru... Það eru nokkur vitni en ef einhver veit um einhvern sem sá þetta, þá plís hafið samband við mig.. S: 694-5960

Nýtt blogg;)

Jáhh nú ætla ég að gera enn eina tilraunina til að blogga eitthvað og vera dugleg að setja inn myndir.. Blush 

.. Núna er ég á fullu í prófunum, en bara enska og permanent + blástur eftirSmile Síðasti prófdagur hjá mér er á þriðjudaginn.. Eftir það byrja ég svo bara á fullu að vinna á Stofunni fram að jólum! Váts, ekki nema 18 dagar!! Og á eftir að kaupa allar jólagjafirnar, samt búin að ákveða alveg hvað ég gef Ragga, það er mikill léttirInLove Svo ætlum við stelpurnar bara að kaupa allar eina gjöf og draga svo hver fær hvaða gjöf, mjög sniðugt þegar maður á ekki mikinn pening og í námi.. Líka búin að ákveða hvað ég kaupi þar, eitthvað sem allar geta nýtt sérSmile Þá er bara eftir öll systkinin mín og makar þeirra og börn, foreldrar og tengdaforeldrar og mágur og konan hans.. Fjúff, nóg að geraW00t 

 

..Jæja nóg komið í bili, ætla að fara að læra, tjáCool


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband