Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Þetta er nú meira letilífið;)

Ég lofaði að ég myndi blogga eitthvað núna þar sem ég er ekki að vinna og ekki í skólanum fyrr en næsta mánudag útaf læknavesens-aðgerðuu, hehe.. Þið vitið sem vitið hvað ég er að tala umSmile  Ég sagði nú reyndar við Elísabetu að ég ætlaði að gera eitt á dag, en ég sé það ekki gerast, verð alltaf svo stopp eitthvað og veit ekkert hvað ég á að skrifaBlush  En allavega, þá er ég bara uppí rúmi núna með hann Ragga minn mér við hlið í viðbragðsstöðunni, gjörsamlega tilbúinn að gera allt fyrir mig, hjálpa mér að standa upp, leggjast niður, laga púðana fyrir mig og breiða yfir mig sænguna og allt, ég þarf ekki að gera neitt sjálf, enn og aftur sannast það hvað það skiptir nú miklu máli að eiga góða aðInLove  ég er svo ánægð með hann að ég get ekki lýst því almennilega! Varð bara að tjá mig aðeins um það, heheWink  Og ef hann er ekki hjá mér, þá er hann frammi að moppa og þrífa eitthvað, það mætti alveg halda að ég hefði skrifað niður nákvæman lista um hvernig mann ég vildi og svo fékk ég bara akkúrat allt sem ég gæti beðið um og rúmlega það.. Tounge  Ég er líka bara snortin hvað það eru margir búnir að koma í heimsókn og hringja í mig og svona, þó að þetta sé nú ekkert stórmál þá eru samt allir svo umhyggjusamir og góðir við mannHeart  Ég veit að ég er svolítið væmin núna í þessu bloggi, ég er bara svo happyLoL         kisskiss

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband