Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

SÁTT eftir frábæra helgi! ;)

.....Já þetta var sko skemmtileg helgi og nóg að gera.. Í gær var semsagt afmæli hjá henni Önnu Lindu pæju sem var haldið í sumarbústað í Efri-Reykjum.. Mjöög gaman þar, sumir aaðeins of ölvaðir sem gerði það bara að verkum að það var ennþá skemmtilegra fyrir okkur sem voru edrú! HeheCool 

.....Svo í dag eða í nótt komu elskulegir foreldrar mínir heim að utan frá Albir, þar sem þau voru í viku, í fyrsta sinn saman til útlanda og í fyrsta sinn sem hún móðir mín fer erlendis.. Klöppum fyrir henni! LoL Mjög ánægð með þau hjúin, þau skemmtu sér líka svo rosalega vel og þetta var akkúrat það sem þau þurftu, fara 2 saman út í hitann og hvíldina! Kissing Mamma varð 50 ára á þriðjudaginn og þar sem þau voru úti á afmælisdaginn hennar tókum við systkinin okkur til og héldum ,,Surprise" afmælisveislu handa henni þegar hún kom heim í dag.. (hún og pabbi kíktu aðeins út í bíltúr) Buðum fullt fullt af fólki og bjuggum til allskonar rétti, kökur og fleira góðgæti, meira en nóg handa öllum.. Þetta heppnaðist ÞVÍLÍKT vel allt! Hefðuð bara átt að sjá svipinn á henni þegar hún opnaði hurðina og þar voru fullt af fólki að syngja afmælissönginn, búið að setja upp kórónur og skreyta þvílíkt flott íbúðina þeirraTounge Henni brá náttúrulega mikið og varð mjög hamingjusöm og glöð með þetta allt! Hún er svo bestust og þetta var einn sá besti dagur sem ég hef upplifað, gekk allt eins og í sögu bókstaflega og fór fram úr öllum væntingum okkar allra!! InLove Svona myndi ég segja að fimmtugsafmæli eigi að vera.. Byrja á að fá fullt af afmælisgjöfum, fara svo út í sólina, slaka á og tana sig aðeins, koma svo heim og fá óvænta afmælisveislu og bara fleiri gjafir.. Og svo gáfu þau okkur öllum systkinunum, tengdabörnum og barnabörnum flottar gjafir að utanSmile Já ég er sko ýkt ánægð með þessa helgi.. Trallalallala, syngjandi hér, syngjandi þar! HeheW00t Ciao, MaRgRéT ElÍsA! Wink


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband