Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Ótrúlegasta Video sem ég hef séð!! ;)

ALLIR! Skoðið þetta... Alveg ótrúlegt og hækkið í tölvunniCool

 

http://www.youtube.com/watch?v=adYbFQFXG0U&feature=related/

 

 

Já.. Úff! Happy


Trúlofunarflug! ;)

Hehe já hvern hefði grunað að 08.08.08 væri dagurinn! Semsagt í kvöld vorum við í fertugs afmæli hjá Boggu frænku Ragga og eftir hana fóru við heim, Raggi sagði mér að fara í ,,venjuleg" föt og svo fórum við útá flugvöll, ég skildi nú ekki alveg hvað stóð til, afhverju að fara að fljúga kl. hálf 11 um kvöld? Heh.. InLove Það var sko heldur betur ástæða fyrir því.. Svaka flott að fljúga svona á kvöldin í myrkinu, ógla rómó.. Þegar við vorum að fljúga yfir húsinu okkar á Stokkseyri biður Raggi mig að taka við stýrinu og fljúga smá fyrir sig.. Svo er ég að stýra og þá segir Raggi: Margrét, viltu giftast mér? Kissing Með hring og alles.. Ég MISSTI andlitið gjörsamlega!! Hvarflaði ekki að mér! Ég sagði að sjálfsögu JÁ og var ekki lengi að þvíGrin Þvílík hamingja og ótrúleg tilfinning! Hringurinn sem hann var gaf mér er ,,bónorðs" hringurinn ROSA flottur gull og hvítagulls með demöntum og á morgun ætlum við að koma við í Jón og Óskar og finna trúlofunarhringana saman.. Get ekki beðið, ég er svo hamingjusöm að ég er bara við það að springaLoL

..Nú erum við að finna okkur til fyrir Akureyrarferðina í fyrramálið, ekki auðvelt að fara að sofa eftir þetta samt.. og er planið að leggja af stað kl. 7 eða 8 í fyrró.. Margir góðir tímar framundan! Smile

 

... Margrét Elísa hamingjusamastaTounge


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband