Alltaf að verða ríkari og ríkari! ;-)
24.11.2008 | 22:08
Það er komin lítil FULLKOMIN prinsessa hjá Ara bróður mínum og Ingunni mágkonu minni og vinkonu! Hún er alveg æðisleg og það gekk allt svo ótrúlega vel! Hún var 4425 gr. eða tæpar 18 merkur takk fyrir og 55 cm, stór og flott.. Enda var nú líka pabbi hennar 20 merkur sjálfur.. Varð bara að monta mig aðeins hvað ég er rík Á sko 3 yndislega og gullfallega náfrænda og 2 æðislegar og gullfallegar náfrænkur!
Svoo, er að fara að bætast í hópinn (vonandi í nótt eða á morgun) hjá Gunnari mág mínum og Selmu svilkonu, hún er komin 11 daga fram yfir, var skrifuð 13. nóv og missti vatnið í morgun, svo núna bíðum við spennt Gunni var búin að segja frá upphafi að hún kæmi 25. nóv (á morgun) og það virðist bara ætla að rætast, hann verður nefnilega 25. ára þá Ekki hægt að fá betri afmælisgjöf en það!!
...Fjúff, ég er svo spennt og hamingjusöm og stolt að ég er að springa! Kem með blogg fljótlega aftur með myndum að litlu Aradóttur og Gunnarsdóttur líka
Kveðja; Margrét sem finnst hún ríkust í heimi!
Athugasemdir
Það var mikið að þú bloggaðir kona! :) en þetta eru æðislegar fréttir, innilega til hamingju með þetta alltasaman! :) er svo ekki komið að þér núna??:)
Díana.. (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 23:01
til hamingju Magga mín með litlu frænku,þetta er yndislegt að eignast lítið frændsystkinni,sendi góðar kveðjur til allra.Gréta.(ein af frænkonum)hahaha
Gréta (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 23:42
Díana: Takk skvísa hehe, hver veit nema ég sé næst? híhí...
Gréta: Takktakk Gréta mín! Já, það er sko yndislegt....
Margrét Elísa;), 25.11.2008 kl. 01:04
Innilega til hamingju með litlu frænkuna:) ekkert smá flott!
Ert ekkert smá rík með þetta allt saman:)
annalinda (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 08:43
Við erum svo ríkar
Myndir af henni á síðunni hans Ara Hrannars ungfrú gullfalleg
Helgan, 25.11.2008 kl. 12:12
til hamingju meðþað magga :D
Karen H (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 12:20
Helga: Jáhh, við erum það sko! :) :D
Karen: Takktakk skvís;)
Margrét Elísa;), 25.11.2008 kl. 23:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.