Þetta er nú meira letilífið;)
13.3.2008 | 20:29
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hahaha! ;)
27.2.2008 | 18:10
Þetta er semsagt lýsing á stjörnumerkjunum eftir kynlífsathafnir!
Hrútur: Ok, gerum það aftur !
Naut: Ég er svöng - pöntum pizzu!
Tvíburi: Veistu hvar fjarstýringin er?
Krabbi: Hvenær giftum við okkur ?
Ljón: Var ég ekki frábær??
Meyja: Ég verð að þvo rúmfötin núna!!
Vog: Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka
Sporðdreki: Hef fengið það betra sko...
Bogamaður: Ekki hringja í mig! Ég hringi í þig..
Vatnsberi: Gerum það núna í engum fötum!
Fiskur: Hvað sagðist þú annars heita??
Steingeit: Áttu nafnspjald?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Jæja, allir að taka þátt:)
25.2.2008 | 15:48
Endilega svara þessu!
*Miðnafnið þitt*
*Aldur*
*Single or Taken*
*Uppáhalds bíómynd*
*Uppáhalds lag*
*Uppáhalds hljómsveit*
*Uppáhalds búð*
*Tattoo eða göt*
*Þekkjumst við persónulega*
*Hver er tilgangurinn með lífinu*
*Myndirðu bakka mig upp í slagsmálum*
*Myndirðu þegja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli*
*Besta minningin þín um okkur*
*Myndir þú gefa mér nýra*
*Segðu eitthvað skrýtið um þig*
*Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik*
*Getum við hist og bakað köku saman*
*Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega*
*Talarðu eða hefurðu talað illa um mig*
*Finnst þér ég góð manneskja*
*Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið*
*Finnst þér ég aðlaðandi*
*Hverju myndir þú vilja breyta í mínu fari*
*Í hverju sefurðu*
*Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla*
*Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera saman*
*Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út*
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Jamm og já..
6.2.2008 | 14:40
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
PERMANENT MÓDEL!
27.1.2008 | 23:02
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jáhh! Heath Ledger bara dáinn!
23.1.2008 | 12:09
Kl. 22:58 í gærkvöldi fæ ég símtal frá Lovísu og hún segir mér að uppáhaldsleikarinn minn sé barasta dáinn! Alveg ótrúlegt! Þetta er alveg ótrúlega sorglegt verð ég að segja.. Alveg síðan ég var bara 11 eða 12 ára fannst mér hann þvílikt æðislegur og alltaf þegar ég var spurð hver væri uppáhalds leikarinn minn sagði ég alltaf hann og þá sögðu flestir: Ha? Hver er það? hehe.. En, svona er þetta, nú er bæði sagt að þetta hafi tengst lyfjanotkun og að hann hafi látist af slysförum, en ég verð nú bara að segja að það var farið að sjást vel á honum að hann væri í einhverju rugli og var búinn að missa eiginlega allan sjarman sem hann bjó yfir hérna í denn, heh Engu að síður rosalega góður leikari , en svona fara þeir nú oft.. Ekki gaman Blessuð sé minning hans!
Heath Ledger látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Já nú er það hvítt!
18.1.2008 | 21:53
Magnað hvað þetta er fljótt að gerast, allt í snjó og hálku og hláku, sem er laaangverst! Ég er allavega strax komin með ógeð á þessu veðri, sérstaklega af því að skólinn er alveg nýbyrjaður og svo er maður bara veðurtepptur heima.. Mjöög leiðinlegt.. En svona er þetta bara Vona að það versni allavega ekki! Annars er rosalega gaman í skólanum, er bara með 10 skemmtilegum stelpum í bekk og 4 óléttar og ein með tvíbura.. Eitthvað smitandi held ég, maður þarf að passa sig að smitast ekki, hehe Jii, eftir ár þá er ég alveg að fara að klára, aðeins betra... Svo er maður komin í heilsuátak, ætla annað hvort í Worldclass eða bara í Toppsport á Selfossi, magnað að Toppsport geti verið með dýrari verðskrá! En samt, Elísabet og Elínborg verða þar, þær eru nefnilega að fara í Ungfrú Suðurland í ár, já maður á svooo sætar vinkonur í fyrra var það Lovísa og núna eru það þær! Spennandi, spennandi!!
Jæja ætla að halda áfram að horfa á Friends, alltaf að bíða eftir að það sé eitthvað atriði sem ég á eftir að sjá, búin að horfa "nokkrum" sinnum á þær allar, en held í vonina ...Tjá
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Maginn alveg að springa! ;)
28.12.2007 | 15:15
Hehe já það má svo sannarlega segja að maður sé búin að borða aaaaðeins of mikið um jólin og ekki er allt búið enn! Gaman að þessu samt.. Hamborgarhryggurinn hennar mömmu alltaf jafn góður á aðfangadaginn og pakkarnir alltaf jafn flottir og enn flottari með hverju árinu! Svo gaman að fá fullt af nýju dóti.. Ég gaf Ragga sjónvarpsflakkara og 500GB disk með og peysu og svo Hugo ilmatn/rakspíra í skóinn.. Svo gaf hann mér Nokia síma, Crash PS2 tölvuleikinn, bwaha bara góður leikur! Endalaust fyndin þessi Crash!! já.. og svo fékk ég bartskeravél sem á eftir að koma sér að góðum notum og ,,Heilsulausin" bókina sem mig langaði rosalega í! Svo yndislegur hann Raggi minn Svo fengum við saman matvinnsluvél, einhverja svakalega græju frá foreldrum hans og sitthvora peysuna og OBH Nordica grill frá foreldrum mínum, svo fengum við rosalega sæta mynd af börnunum hans Grétars bróðurs og Helgu, straujárn, glerkertaskál rosa flott.. Svo var fullt en.. Skæri frá Þóru, geðveikt flott nærföt og Love Spell ilmvatnið frá Helgu, Bjarma og Ara og fullt fullt fullt... Svo núna er maður bara að njóta þess hvað það er komið mikið af nýju dóti og liggja í leti.. Ég skellti mér nú samt á 2. í jólum ball með stelpunum! Aldrei þessu vant, hef ekki farið á ball síðan í júlí 2006.. Það var rosalega gaman, byrjaði á að fara heim til Elínborgar og Bjarnar Daða, þar vorum bara ég, Karen, Lovísa og auðvitað Elínborg, það var ekkert smá gaman heima hjá henni! Mikið grín og mikið gaman!! Þau búa í blokk og það voru soldil læti í okkur og viti menn! Er ekki kominn einhver kall að kvarta undan hávaða og sagði að það væru nú sumir að fara að mæta í vinnu um morguninn og blabla, hehe og Elínborg eins hreinskilin og hún er sagði bara: Já, ekki ég! hehe og fékk svo leyfi til að hafa geðveikt hátt í 5 mín í viðbót og svo myndum við fara á ball, hehe og hann samþykkti það.. Svo fórum við á ball að verða 1, það var einhver svakaleg röð og þá fórum við bara á bakvið, Oj Ella með samböndin Það var gjörsamlega troooðið þarna inni og þegar klukkan var að verða 3 bað ég bara Ragga að sækja mig vegna þess að ég var ekkert að finna stelpurnar! Já svona er þetta en það var nú samt mjög gaman!
.. Svo er bara árið 2008 að fara að bresta á, vonandi verður það jafn skemmtilegt ár og 2007.. Það kemur allavega eitt nýtt barn í vinahópinn og það er hjá Tinnu og Valla, hún er að reyna að bíða með að eiga þangað til yfir áramótin, barnið er aðeins að flýta sér í heiminn.. Ekkert smá spennandi! gaman gaman! Jæja, best að fara að gera eitthvað, held ég hafi bara aldrei bloggað svona langt! Gleðilegt nýtt ár allir!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jólajól!
17.12.2007 | 01:06
Jáá jólin eru sko að koma! Og ég er orðin veeeel spennt! Næstum búin að kaupa allar gjafirnar.. Svo er bara vinna á Stofunni og 7 dagar í aðfangadag.. Við Raggi verðum saman heima hjá foreldrum mínum og svo hjá hans á jóladag og á Stokkseyri á áramótunum gaman, gaman.. Verður fljótt að líða, svo mikið að gera.. Á eftir að skreyta fullt, baka, klára að kaupa gjafir og finna jólaföt, fjúff Jæja ætla að fara að koma mér í háttinn svo ég sofi ekki til næstum 2 eins og í dag.. Ótrúlegt hvað maður er búinn á því eftir heilan dag í Reykjavík traffíkinni núorðið! Gúd næd pípol og eigið góð jól og verið góð við hvort annað
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ótrúlegt hvernig þetta er orðið...
10.12.2007 | 22:21
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)