Sumarfrí! ;)

Já, ég er sko í sumarfríi og Raggi líka.. Fórum núna eftir vinnudaginn 11. Júlí, byrjuðum semsagt eiginlega 12. þá:) Een, þetta er búið að vera voða ljúft líf, búin að fara ekki nema 3x til Rvíkur og er að fara aftur á morgun.. Hehe! Já, mætti halda að ég myndi fá nóg eftir alla skólakeyrsluna en neee! Greinilega ekki.. Við erum líka búin að þökuleggja sem er ÆÐISLEGT! Allt annað líf! Og fyrir 3 vikum steyptum við stétt hérna fyrir framan útidyrahurðina, það er búið að setja möl á bakvið þar sem þvottasnúrurnar eiga að vera.. Svo að þetta kemur allt, á bara eftir að steypa innkeyrsluna, mála húsið og klára undirneglinguna! Hvah, ekkert málBlush Híhí.. En já, það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.. Til dæmis áttum við Raggi 2 ára afmæli 2. Júlí og þann dag fékk ég svaka flottan blómvönd sendan í vinnuna til mín, ekkert smáá sættInLove Yndislegur þessi Raggi minn! Svo eldaði ég lambafillet og meðþví í kvöldmat, sem heppnaðist allt fullkomlega, enda happadagur;) Svo helgina eftir, eða á laugardeginum var hann búinn að plana ,,surprise" í tilefni afmælisins og hann hljómaði svona: lögðum af stað kl. 11 um morguninn, fórum í sérstakt ,,Margrétarflug" eins og hann kallaði það sem er semsagt flug með mikið af dýfum, sem mér finnst sko EKKI leiðinlegt! HehCool svo keyrðum við til Rvíkur, í Bláa Lónið og út að borða á Caruso eftir það.. Svo ætluðum við í bíó en voru eiginlega engar myndir sem okkur langaði að sjá þannig að.. Við fórum bara heim.. Þetta var alveg æðislega rómantískur og skemmtilegur dagur..

..Helgina eftir það var svo sumarfríið byrjað og Bryggjuhátíðin gengin í garð.. Við skelltum okkur í partí og á ball, það var mjög gaman líka! Mikið grín og mikið gaman;) Svo þann 17. Júlí átti Raggi afmæli, 28 ára kallinnLoL Við héldum smá kvöldkaffi og það komu alveg fullt af fólki.. Kláraðist næstum allt sem ég græjaði, sem betur fer var nóg fyrir alla.. Maður er ennþá aðeins að átta þig á því hvað þarf að gera mikið fyrir hvað marga og jaríjaríjarí allt þaðHalo

En allavega, þá vona ég að það sé ennþá eitthvað spennandi eftir í sumarfríinu, 2 vikur eftir! Vúhúú! Förum vonandi í aðra útilegu, búin að fara í eina, fyrstu helgina í Júlí með Önnu Lindu, Bjarka, Lindu, Steina, Guðjóni, Söndru, Valla, Vigni, Örvari, Haffa og Ínu.. Það var rosa gaman líka.. Mjööög ánægð með það sem af er sumrinu! Grin En jæja, nú ætla ég að segja þetta gott í bili..

 

Margrét í sömmerskapi!! W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgan

ætlaru að breytast í einhverja 101 túttu???

mála húsið og mála húsið ætliði að mála tvær umferðir eða? múhahahahahahahaha

Helgan, 23.7.2008 kl. 06:30

2 Smámynd: Helgan

jæks það er örugglega enginn sem kvittar á þessum tíma dags á blogg hehehehe

hei kondu í ræktina!!!

Helgan, 23.7.2008 kl. 06:31

3 Smámynd: Margrét Elísa;)

Hahah Neeee, ætlum nú ekki tvær umferðir... Eða jú, eina okkar megin og eina Gunna og Selmu megin:)

Margrét Elísa;), 23.7.2008 kl. 16:55

4 identicon

halló halló góðann daginn.. djöfull öfunada ég ykkur á þessu fríi! eeeen, ekki líður á löngu þangað til að ég fer í frí.. og þá skal ég sko njóta þess að hefna mín á öllu þessu sumarfrísmonti ykkar! múhahaha..

Valli (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 22:17

5 Smámynd: Margrét Elísa;)

Tsss, þegar þú ferð í frí verður byrjað að rigna alltaf og svona! :) reyndar er mikið búið að rigna í okkar fríi

Margrét Elísa;), 23.7.2008 kl. 22:18

6 identicon

já það er ótrúlega næs að vera í sumarfríi:) að geta sofið út og gert það sem manni langar að gera.. uuuunaður! hehe

Hlakka líka til þegar húsið ykkar verður alveg reddí:) ég er alltaf svo samglö og samspennt;)

annalinda (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 10:27

7 Smámynd: Margrét Elísa;)

Hehe, já og það er nú bara mikill kostur!

Margrét Elísa;), 24.7.2008 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband